Ég á að vera að læra..þess vegna er ég að blogga...kannast einhver
við það..hmm??

þetta er 4 dagurinn minn í röð þar sem ég mæti á þjóðarbókhlöðunu
kl 8 og hangi þar yfir bókunum þangað til einhvern tíman seiiiint
um daginn

bleeh ekki skemmtilegasti staðurinn sem ég veit um..en
hei maður neiðist til að læra hérna

sem er ágætt
ég er búin að komast að ansi fyndnum hlut, það er röðin sem myndast
fyrir utan þjóðarbókhlöðuna á morgnanna áður en hún opnar.. Jebb
það myndast röð! hmm kannski ekki alveg rétta orðið að kalla þetta
röð þar sem við íslendingar bara kunnum ekki að vera í röð.. þetta
er meira svona pirraður hópur þar sem allir ýta á alla og reyna að
standa sem næst harðlæstri hurðinni.. mjög skondin sjón.. flestir
hálfúldnir og nýlega vaknaðir..
þarna er síðan beðið til ca korter yfir átta..og þá magnast sko
spenningurinn.. allir þjappast enn meira saman til að reyna að
komast sem fyrst inn.. heeeh
í morgun var æsingurinn svo mikill að ekki biðu nú allir eftir því
að hurðin væri komin alveg upp..heldur var bara smeygt sér undir
hana og þaðan inn... brjálaði æsingur er þetta..! fólk barasta í
kapphlaupi upp stigana til að nálgast uppáhaldsborðið sitt... fjúff
en reyndar er búið að vera svo stappað hérna undan farið að maður
er heppin ef maður fær eitthvað borð...svo að þessi æsingur er
svona smá skiljanlegur .. en samt .. heh en samt ekki alveg þess
virði finnst mér að vera eins og algert flón hlaupandi eins og
brjálæðingur til að ná einu skitnu borði...hehe