ég sit hérna heima alein og remist við að læra, er alein þar sem
uppáhalds læriböddíinn ákvað að stinga af uppá skaga í langþráða
heimferð...sniff...
mikið ofsalega er leiðinlegt eitthvað að vera ein að læra...
en það er líka leiðinlegt að vera á bókhlöðunni þar sem maður má
ekki kjafta, tala í símann eða borða fyrir framan tölfuna eða
bækurnar sínar þegar maður vill

... þeir greinilega ætlast til að
maður bara Læri..haaah piff
ööööööh
en já fór í verklegan tíma í dýrabeinafræðinni í gær, rosalega
fannst mér það gaman! vildi bara óska að það hefði verið mun meira
um verklega tíma í þessum áfanga.. held að maður hefði lært mjög
mikið af því... finnst svolítið lítið að vera bara í einum
verklegum tíma yfir alla önnina...en hei...fékk samt að
grúska

það var líka ansi spes að sjá að ofan í einum pappakassanum lágu
pokar ofana á poka merktir "Brúnn" og fá svo að vita það að Brúnn
var uppáhalds hestur einhvers gamals bónda... og þetta voru beinin
hans sem við fengum að nota til að bera saman við þau bein sem við
vorum með... duldið spes svona eftir á að hafa verið að grandskoða
lærlegginn á honum Brúna gamla ...

held að ég yrði ekkert voðalega sátt vitandi það að bein
gæludýrsins míns væru í pokum einhverstaðar til skoðunar..en hei
það er bara ég, gamli bóndinn var víst alveg sáttur með þetta
en jamm back to the books...blehh